

Brennur þú fyrir sjálfbæra nýtingu, vernd og endurheimt vistkerfa?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi með mikinn áhuga á velferð íslenskrar náttúru til þess að starfa með hópi sérfræðinga á skrifstofu náttúru- og minjaverndar hjá ráðuneytinu.Um er að ræða stöðu sérfræðings á sviði verndar og endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar auðlindanýtingar sem kemur til með að vinna að þeim málaflokki í æðstu stjórnsýslu landsins.
Starfið felur í sér krefjandi og metnaðarfull verkefni sem snúa að málefnum endurheimtar vistkerfa, auðlindanýtingar og líffræðilegrar fjölbreytni og eru framkvæmd í samstarfi við hag- og fagaðila og eftir stefnu ríkisstjórnar og áherslum ráðherra. Viðkomandi kemur til með leiða verkefni og taka þátt í stefnumótun sem og alþjóðlegu starfi á starfssviði skrifstofunnar.
-
Yfirumsjón með málefnum endurheimtar vistkerfa
-
Leiða verkefni sem snúa að samspili auðlindanýtingar, loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni.
-
Leiða verkefni sem snúa að endurheimt vistkerfa á landi og í hafi
-
Vinna að verkefnum sem snúa að virkri stjórn og vernd vistkerfa.
-
Stefnumótun og eftirfylgni verkefna á starfssviði skrifstofunnar
-
Þátttaka í alþjóðlegu starfi á starfssviði skrifstofunnar
-
Samstarf við önnur ráðuneyti og stofnanir.
-
Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi (auðlindir, vistfræði, sjálfbær nýting t.d. )
-
Reynsla af stefnumótun og eftirfylgni.
-
Geta til að leiða verkefni
-
Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
-
Góð stafræn hæfni
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
-
Mjög góð færni í íslensku bæði í töluðu og rituðu máli.
-
Góð enskukunnátta
Íslenska
Enska