Eygló
Eygló er samstarfsverkefni á grunni hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi, heitið vísar til öflugasta orkugjafans, sólarinnar, og til bjartrar og kraftmikillar framtíðar. Meginmarkmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hliðarstrauma og flétta þá inn í nýja verðmætasköpun. Þetta styður við vöxt sprotafyrirtækja og fjölgar tækifærum til þátttöku í alþjóðlegum rannsókna- og þróunarverkefnum í samstarfi við fyrirtæki á svæðinu. Ætlunin með Eygló er að leiða saman aðila til að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum. Að verkefninu standa Landsvirkjun, Samtök sveitarfélaga á Austurlandi og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Verkefnastjóri - Eygló
Eygló leitar að verkefnastjóra til að sinna verkefnum sem snúa að uppbyggingu og þróun á sviði hringrásarhagkerfisins, orkuskipta og nýsköpunar. Verkefnastjóri vinnur náið með starfsfólki Eyglóar og hagaðilum í nærsamfélaginu. Starfsstöð verkefnastjóra er á Austurlandi.
Eygló er samstarfsverkefni sem snýr að bættri nýtingu auðlinda á Austurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. Heitið Eygló vísar til öflugasta orkugjafans, sólarinnar, og til bjartrar og kraftmikillar framtíðar. Að verkefninu standa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virk þátttaka í öflun nýrra verkefna
- Verkefnastjórn og eftirfylgni
- Söfnun, greining og úrvinnsla gagna
- Þátttaka í umsóknarskrifum
- Samskipti og samstarf við hagaðila
- Umsjón með samfélagsmiðlum
- Teymisvinna með Bláma, Eim og Orkídeu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á hringrásarhagkerfinu, nýsköpun og orkuskiptum
- Þekking á nýsköpunar-, frumkvöðla- og styrkjaumhverfi vegna þróunar- og rannsóknaverkefna er æskileg
- Rík samskiptahæfni og færni í að koma frá sér efni
- Færni í að miðla efni á vef- og samfélagsmiðlum er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af verkefnastjórn er kostur
- Góð færni í íslensku og ensku
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur30. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Tjarnarbraut 39, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)
Sérfræðingur á sviði samfélags og umhverfis
Landsvirkjun
Sérfræðingur í úttektum á stjórnkerfistöðlum
BSI á Íslandi ehf.
Sérfræðingur skógarúttekta og loftslagsbókhalds
Land og skógur
Sérfræðingur í viðhaldsstýringu og gagnagreiningum
Landsnet hf.
Öflugur liðsfélagi óskast við þróun vindorku (nemi)
wpd Ísland ehf.
Öflugur liðsfélagi óskast við þróun vindorku
wpd Ísland ehf.