Veitur
Veitur
Veitur

Verkefnastjóri borholuframkvæmda

Viltu leiða krefjandi borholuverkefni sem tryggja 70% landsmanna heitt vatn til framtíðar?Framundan eru umfangsmiklar framkvæmdir í borunum eftir vatni á lághitasvæðum til að mæta vaxandi eftirspurn og tryggja mikilvægan forða til framtíðar. Samhliða því vinna Veitur að fjölbreyttum fjárfestingarverkefnum, meðal annars tengdum endurnýjun á dælu- og borholubúnaði.

Við leitum að öflugum verkefnastjóra borholuframkvæmda sem hefur reynslu af undirbúningi og stýringu flókinna verkefna. Starfið er í fjárfestingadeild Vatnsmiðla, sem hefur það hlutverk að tryggja skilvirka verkefnastýringu í samræmi við stefnu Veitna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra borholu- og öðrum fjárfestingarverkefnum frá undirbúningi til verkloka
  • Hafa umsjón með leyfismálum, verksamningum og aðföngum verkefna
  • Fylgja eftir hönnunargögnum, útboðum og verklýsingum
  • Tryggja framvindu, kostnaðareftirlit og gæði
  • Eiga í virku samstarfi við verktaka, ráðgjafa og aðra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkefnastjórnun umfangsmikilla framkvæmda
  • Reynsla af borframkvæmdum, leyfismálum og undirbúningi slíkra verkefna er mikill kostur
  • Hæfni í samningastjórnun og eftirfylgni með kostnaðaráætlunum og framvindu verkefna
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sterk lausnamiðuð hugsun
  • Mjög góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Við trúum á að fjölbreytileiki leiði til betri árangurs og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um, óháð því hvort þau haka í öll boxin.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026. Nánari upplýsingar veita Anna Berglind Sigurðardóttir deildarstjóri fjárfestinga í búnaði, á netfanginu [email protected].

Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar