

Verkefnastjóri á fjármála- og stjórnsýslusviði
Borgarbyggð leitar eftir drífandi einstaklingi í stöðu verkefnastjóra á fjármála- og stjórnsýslusviði, sem er mikilvægt stoðsvið og vinnur þvert á öll svið sveitarfélagsins.
Hlutverk verkefnastjóra er rekstur gæðakerfis, teymisvinna við gerð verkferla innan sveitarfélagsins og setningu mælanlegra markmiða, launavinnsla þ.e. skráning og yfirferð launa- og ráðningargagna, skjalavinnsla.
Um 100% starf er að ræða. Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldi og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
-
Verkefnastjórnun
-
Rekstur gæðakerfis
-
Ferlagreining- og endurskoðun ferla þvert á svið og deildir
-
Umsjón með jafnlaunakerfi og jafnlaunavottun
-
Launavinnsla
-
Skjalavinnsla
-
Greiningar og tölfræði úttektir
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta, lögfræði eða fjármála, framhaldsmenntun er kostur
-
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu, fjármálum sveitarfélaga, gæða- og launamálum er kostur
-
Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
-
Góð almenn tölvukunnátta og færni í framsetningu tölulegra gagna
-
Gott vald á íslenskri tungu í mæltu og rituðu máli
-
Færni til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
-
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Sveigjanlegur vinnutími
- Stytting vinnuvikunnar
- Heilsustyrkur til starfsmanna











