Akureyrarbær
Akureyrarbær

Verkefnastjóri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða drífandi einstakling í fjölbreytt starf, með áherslu á eftirlit með framkvæmdum, verkstjórn, gerð mæliblaða og viðhalds teiknigrunna, auk annarra verkefna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólapróf (B.S.) í byggingartæknifræði, umhverfis- og byggingarverkfræði, byggingafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsmenntun kostur.
Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, góð þekking og reynsla af teikniforritum s.s. Microstation, Excel, mælingarforrit, þekking á One system.
Þekking og reynsla á mælingartækjum eins og GPS og alstöð og þeim hugbúnaði er þeim fylgir.
Starfið krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingar nýrra hugmynda og vinnubragða.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Hæfni í mannlegum samskiptum, góð framkoma, hæfni í samningaumleitunum og góð þjónustulund er nauðsynleg.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnunarverkefni á sviði umferðar- og gatnamála.
Umferðaröryggismál í samvinnu við Skipulagssvið.
Gerð og viðhald mæliblaða.
Umsjón og viðhald teiknigrunna og korta.
Utanumhald um loftmyndir og teikniforrit.
Eftirlit með framkvæmdum/verkefnastjórn og mælingar.
Vinna við gagnagrunna og úrvinnslu gagna, s.s. umferðar- og hávaðamál.
Aðkoma að skipulagsvinnu og kostnaðarmati í samráði við skipulagssvið.
Auglýsing birt4. nóvember 2022
Umsóknarfrestur28. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar