Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjórar hönnunar og framkvæmda

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds heldur utan um stofnframkvæmdir og viðhald á eignum Reykjavíkurborgar, bæði fasteignum, samgöngumannvirkjum og opnum svæðum. Skrifstofunni er skipt upp í þrjár deildir, deild nýbygginga, deild viðhalds fasteigna og deild gatna, lóða og opinna svæða.

Við leitum að drífandi verkefnastjórum til að stýra fjölbreyttum verkefnum skrifstofunnar á sviði frumhönnunar, verkhönnunar, framkvæmda og viðhalds. Verkefnin tengjast Græna Planinu sem er heildarstefna borgarinnar og leggur línur í fjárfestingum og grænum lykilverkefnum sem byggja á sjálfbærni og skýrri framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag. Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og áhersla er á markvissa teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring á sviði nýframkvæmda og viðhalds fasteigna, gatnamannvirkja, lóða og opinna svæða.
  • Undirbúningur og áætlanagerð, gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana.
  • Umsjón og eftirlit með vinnu aðkeyptra verktaka og hönnuða.                
  • Samskipti við íbúa, verkfræðistofur, verktaka og aðra hagaðila.
  • Eftirfylgni verkáætlunar viðhalds- og verklegra framkvæmda.
  • Þátttaka í vinnuhópum og vettvangsferðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf s.s.á sviði verkfræði, arkitektúr, tæknifræði, byggingarfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og færni í samskiptum.
  • Menntun og/eða reynsla á sviði verkefnastjórnunar er kostur.
  • Reynsla af áætlanagerð og gerð útboðsgagna er kostur.
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur.
  • Þekking á BIM hönnun og umhverfisvottunum er kostur.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku og þekking og færni til að setja fram ritað mál.
  • Góð almenn tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi tengd starfssviði.
Auglýsing birt12. janúar 2024
Umsóknarfrestur7. febrúar 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ArkítektúrPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar