Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Verkefnafulltrúi í skaðaminnkandi verkefnum - Frú Ragnheiður

Verkefnafulltrúi í skaðaminnkandi verkefnum – Frú Ragnheiður (Framtíðarstarf, þarf að hefja störf sem fyrst)

Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að duglegum og samviskusömum einstaklingi í framtíðarstarf sem verkefnafulltrúi í Frú Ragnheiði, með mögulegri aðstoð í Ylju.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og mun starfa í öflugu teymi sem vinnur að því að veita skaðaminnkandi þjónustu á vettvangi.

Hvað er Frú Ragnheiður?

Frú Ragnheiður er færanlegt skaðaminnkunarúrræði sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð. Þjónustan er lágþröskulda og veitt í nærumhverfi einstaklinga með sérútbúnum bíl, þar sem boðið er upp á lágþröskulda heilbrigðisþjónustu, skaðaminnkandi þjónustu og sálfélagslegan stuðning.

Hvað er Ylja?

Viðkomandi gæti einnig veitt aðstoð í Ylju, fyrsta neyslurýminu á Íslandi. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta notað vímefni í æð og reykt ópíóíða og/eða örvandi efni undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks og með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum. Neyslurými hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning og bætt heilsu einstaklinga sem nota vímuefni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stuðningur og eftirfylgd með sjálfboðaliðum og skipulag vakta fyrir sjálfboðaliða í Frú Ragnheiði
  • Umsjón með daglegri starfsemi Frú Ragnheiðar
  • Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Fræðsla, kynning og þjálfun nýrra sjálfboðaliða
  • Skráning og greining gagna fyrir mælikvarða og skýrslugerð
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
  • Möguleg aðstoð í Ylju eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að:

  • Menntun sem nýtist í starfi (t.d. félagsvísindi, félagsráðgjöf, geðheilbrigði) er kostur
  • Þekking eða reynsla af skaðaminnkun, félagslegum úrræðum eða heilbrigðisþjónustu er kostur
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt hugarfar og frumkvæði
  • Skipulagshæfni og reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur

Hvað býður Rauði krossinn upp á?

💪 Hreyfimínútur – Því vellíðan skiptir máli
🚴 Samgöngustyrkur – Stuðningur við vistvænar samgöngur
🏋️ Líkamsræktarstyrkur – Heilsueflandi stuðningur
📱 Farsímastyrkur – Til að auðvelda samskipti

📅 Umsóknarfrestur: Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst
📍 Um er að ræða framtíðarstarf

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]

Auglýsing birt7. mars 2025
Umsóknarfrestur16. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar