
Verkefnafulltrúi í markaðsleyfadeild
Lyfjastofnun auglýsir laust starf verkefnafulltrúa í markaðsleyfadeild, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem snúa að umsóknum um skráningu lyfja. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Móttaka, meðhöndlun og eftirfylgni skráningarumsókna
- Móttaka og umsýsla ýmissa skráningarverkefna
- Vöktun pósthólfa
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
- Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Góð tölvufærni
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.













