Rawanq Al Salam International LLC
Rawanq Al Salam International LLC
Rawanq Al Salam International LLC

Vélstjóri - Vélfræðingur

Rawanq Al Salam International auglýsir eftir öflugum og faglegum vélstjóra til starfa á einum af sjö uppsjávarfrystitogurum félagsins. Um er að ræða ábyrgðar- og lykilstöðu í rekstri skipsins þar sem reynsla, frumkvæði og fagmennska skipta sköpum.

Helstu verkefni og ábyrgð fela í sér stjórnun viðhalds og daglegs rekstrar vélarrýmis, umsjón með viðhaldi og viðgerðum véla og annars tæknibúnaðar um borð, auk skipulagningar og framkvæmdar fyrirbyggjandi viðhalds með áherslu á rekstraröryggi og öryggi áhafnar. Viðkomandi tekur jafnframt þátt í þróun, uppbyggingu og innleiðingu nýrra tæknilausna og sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem tengjast rekstri skipsins.

Við leitum að vélstjóra með víðtæka þekkingu og haldgóða reynslu af sambærilegum störfum. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og metnaði fyrir öruggum og skilvirkum rekstri. Jafnframt leitum við að einstaklingi sem hefur ævintýraþrá og áhuga á að takast á við nýjar áskoranir og starfa í alþjóðlegu umhverfi.

Unnið er í 50 til 60 daga í senn með sambærilegu fríi á milli túra. Í boði eru samkeppnishæf laun sem eru samningsatriði, ásamt starfi hjá traustu og vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun viðhalds og daglegur rekstur, umsjón með viðhaldi og viðgerðum véla og annars búnaðar um borð.
  • Fyrirbyggjandi viðhald með áherslu á rekstraröryggi og öryggi starfsfólks.
  • Þátttaka í þróun, uppbyggingu og innleiðingu á nýjum lausnum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vélstjórnarréttindi VF.1. og STCW III/2.
  • Reynsla af því að vinna á sjó sem vélstjóri skilyrði.
  • Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
  • Góð reynsla og þekking á rekstri og viðhaldi á vélum og búnaði.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla þekkingu á íslensku og ensku.
  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
  • Ríkir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu.
Auglýsing birt4. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar