Akureyri
Akureyri
Akureyri

Velferðarsvið: Teymisstjóri farsældar barna

Brennur þú fyrir farsæld barna?

Velferðarsvið Akureyrar auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu teymisstjóra farsældar barna. Um er að ræða ótímabundna stöðu.

Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um málefni aldraðra. Hlutverk sviðsins er að bjóða upp á ráðgjöf og beita úrræðum auk þess sem sviðið rekur þjónustukjarna og vinnustaði fyrir fatlað fólk. Þjónustusvæðið nær yfir Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp skv. þjónustusamningum við sveitarfélögin um ráðgjafarþjónustu og samningi sveitarfélaganna um málaflokk fatlaðra.

Teymisstjóri farsældar barna heldur utan um málaflokkinn í samvinnu við forstöðumann félagsþjónustu og hefur yfirsýn. Hann beitir sér fyrir þróun verkferla og nýjunga í þjónustunni í samstarfi við forstöðumann og starfsfólk og hefur frumkvæði að mikilvægu samstarfi innan félagsþjónustunnar og utan. Vinnur náið með forstöðumanni skólaþjónustu, forstöðumanni barnaverndar, Barna og fjölskyldustofu og fleiri aðilum að innleiðingu farsældarlaganna.

Teymisstjóri stýrir teymi þeirra starfsmanna sem vinna við að þjónusta börn og barnafjölskyldur samkvæmt Lögum um samþætta þjónustu farsældar barna nr. 86 2021. Í því felst að útdeila verkefnum (málum) til þeirra sem vinna í málaflokknum og veitir starfsfólki nauðsynlegan stuðning við vinnslu mála. Teymi farsældar barna er skipað teymistjóra og ráðgjöfum farsældarteymis. Auk utanumhalds og verkstjórnar vinnur teymisstjóri sjálfur sem málstjóri.

Teymisstjóri leiðir faglegt starf og fer með daglega stjórnun teymis.

Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun (B.A./B.S.) sem nýtist í starfi, s.s. félagsráðgjöf, uppeldis- og menntunarfræði, þroskaþjálfun.
  • Framhaldsmenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Haldbær og farsæl reynsla af starfi með börnum.
  • Haldbær og farsæl reynsla af starfi innan félagsþjónustu.
  • Þekking á stöðu barna og helstu úrræðum sem þeim og fjölskyldu þeirra stendur til boða.
  • Rík krafa er gerð um samskiptafærni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
  • Reynsla af teymisstjórn æskileg.
  • Umbótamiðuð hugsun.
  • Góð færni til að tjá sig á íslensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Góð færni til að tjá sig á ensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samverópskum tungulmálaramma).
  • Bera virðingu fyrir fjölbreytileika einstaklinga og réttindum þeirra.
  • Hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar