

Starfsmaður í 60-100 % starf í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými
Auglýst er eftir starfsfólki með heilbrigðis bakgrunn eða félagsfræðilegan bakgrunn í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými, 60-100 % starf
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks sem notar vímuefni?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að fólki með heilbrigðismenntun, félagsfræðilegan bakgrunn, eða fólki með reynslu og þekkingu í málaflokknum í hluta eða fullt starf.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notenda-og áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu.
Hvað er Ylja?
✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
- Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
- Tengiliður í heilbrigðis- og félagsþjónustu
- Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að
- Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, aðrir með félagsfræðilegan bakgrunn eða þekkingu og reynslu af málaflokknum.
- Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
- Góð færni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
- Hæfni til að vinna í notenda- áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu
- Jákvæðni, þolinmæði og sveigjanleiki og hæfni til að takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur
📅 Umsóknarfrestur: Lok mars - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]
Íslenska
Enska













