Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Varaslökkviliðsstjóri

Fjarðabyggð leitar eftir varaslökkviliðsstjóra

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf varaslökkviliðsstjóra. Um er að ræða 100% starf auk bakvakta, með starfsstöð í aðal slökkvistöð liðsin að Hrauni á Reyðarfirði. Slökkvilið Fjarðabyggðar er með 5 starfstöðvar þar sem atvinnulið starfar samhliða hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:

  • Hluti af stjórnandateymi slökkviliðs.
  • Telst til vakthafandi liðsheildar og sinnir útköllum þegar þörf er á vegna álags og mönnunar liðsins.
  • Dagleg stjórn á útkallsdeild liðsins og skipuleggur æfingar og þjálfun þess.
  • Umsjón með vaktskipulagi, fjarveruskráningum og afleysingum.
  • Umsjón með tímaskýrslum og gerð launskýrslna.
  • Skipuleggur fræðslu til stofnanna, fyrirtækja og almennings vegna brunavarna.
  • Gerð verkferla sem varða viðfangsefni slökkviliðsins, aðstoð við gerð slökkvi- og viðbragðsáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
  • Löggilding sem slökkviliðs-og sjúkraflutningamaður.
  • Farsæl reynsla af stjórnun áskilin.
  • Leiðtogahæfni, drifkraftur og fagmennska.
  • Jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Færni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Almenn tölvufærni.
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauni
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar