
Skaginn 3X ehf.
Skaginn3X er fyrirtæki sem vex upp í sterku samstarfi við íslenskan sjávarútveg og er nýstárlegur hátækniframleiðandi á kæli-, frysti- og vinnslukerfum fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað og alþjóðlegur leiðtogi í uppsjávarvinnslukerfum.
Systurfyrirtækið þess, BAADER Ísland er innflytjandi, framleiðandi og þjónustuaðili fyrir BAADER, TRIO og SEAC fiskvinnsluvélar.
Öll fyrirtækin eru nú undir einu þaki á Íslandi og að fullu í eigu BAADER sem er alþjóðlegur leiðtogi í þróun og framleiðslu fiskvinnslutækja.
Sameiginleg staðsetning og stjórnun á Íslandi hefur það að markmiði að hraða samstarfi við atvinnugreinina með framúrskarandi þjónustu og nýsköpun að leiðarljósi sem mun nýtast sjávarútvegi á Íslandi og alþjóðlega.

Varahlutasérfræðingur
Varahlutasérfræðingur ber ábyrgð á öllum pöntunum og fyrirspurnum varðandi varahluti til viðskiptavina okkar og innan fyrirtækisins. Tryggir einnig að pöntunarbeiðnum og fyrirspurnum sé sinnt tímanlega.
Starfið felst einnig í því að selja varahluti og/eða pakka í gegnum síma og/eða stöku sinnum heimsókn til viðskiptavina. Starfsmaðurinn tryggir einnig að verðlagningarstefnu sé haldið innan ERP og tilboða.
Menntunar- og hæfniskröfur
Gráða í verkfræði er kostur.
Tveggja til þriggja ára reynsla í meðhöndlun varahluta og/eða í vöruhúsarekstri.
Reynsla í notkun ERP, Navision og/eða SAP æskileg.
Mikil og góð reynsla í mannlegum samskiptum.
Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðhöndlun á öllum pöntunum á varahlutum, fyrir utan tínslu, pökkun og sendingu.
TIlboðsgerð fyrir viðskiptavini og söluteymi okkar.
Pantanafærslur í ERP kerfi okkar.
Útbúa reikninga og tryggja að innheimta fari fram tímanlega.
Eftirlit með tilboðum.
Eftirlit með greiðslum.
Fletta upp og finna þá varahluti sem óskað er eftir hverju sinni.
Þekkja varahlutaþarfir viðskiptavina okkar.
Skilgreina varahlutapakka.
Sala varahluta.
Heimsóknir til viðskiptavina.
Miðla afhendingum og stöðu á virkan hátt við innri og ytri viðskiptavini okkar.
Öflun nýrra viðskiptavina.
Vinna við CRM og ERP kerfa fyrirtækisins.
Afgreiðsla ábyrgðarkrafna.
Vinna innan settra marka KPI félagsins.
Mótun umbótatillagna í varahlutaferli félagsins.
Auglýsing birt8. júní 2023
Umsóknarfrestur20. júní 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lambhagavegur 5, 113 Reykjavík
Bakkatún 26, 300 Akranes
Sindragata 5, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaMicrosoft CRMNavisionSAPSölumennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Tæknisérfræðingur
Korda

Commissioning Manager
atNorth

Tímabundið starf í vöruhúsi og akstri
TVG-Zimsen

Við leitum að liðsauka á lager | Warehouse Team Member
JBT Marel

Lagerstarfsmaður
KS

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Project Director
atNorth

Fagstjóri fasteigna
Grundarheimilin

Úthringiver
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið