
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Vaktstjóri í íþróttamiðstöð
Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum óskar eftir Karlkyns vaktstjóra í 90 - 100% starfshlutfall. Unnið er náið með starfsfólki Grunnskóla Borgarfjarðar.
Í Íþróttamiðstöðinni á Kleppjárnsreykjum fara fram skólaíþróttir barna í Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjardeild, sundæfingar og þrek.
Í Grunnskóla Borgarfjarðar er 1.-10. bekkur og koma nemendur frá Hvanneyri, Skorradal, Bæjarsveit, Lundarreykjadal, Flókadal, Reykholtsdal, Hálsasveit og efri hluta Hvítársíðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sundlaugargæsla, öryggisgæsla, klefavarsla, baðvarsla, gangavarsla, rýmisvarsla
- Afgreiðsla, þjónusta, samskipti við gesti, starfsmenn/aðra
- Símsvörun og upplýsingaþjónusta
- Upplýsingamiðlun og viðburðaskráning
- Almenn þrif
- Véla og tækjanotkun
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af starfi með börnum er æskileg
Menntun sem nýtist í starfi
Góð íslenskukunnátta
Samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Jákvæðni og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
Afsláttur hjá Símanum
Afsláttur á bókasafninu
Heilsustyrkur
Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkyndihjálpSnyrtimennskaÞjónustulundÞolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Sölufólk óskast í verslanir okkar
NTC ehf

Campsite Agent
Tjaldsvæðið í Laugardal

Starfsfólk óskast í hlutastarf
S4S Premium Outlet

Verslunarstjóri S4S Premium Outlet
S4S Premium Outlet

Sundlaugarvörður - Íþróttamiðstöðin Garði
Suðurnesjabær

Við leitum að öflugum starfskrafti - Reykjanesbær
Humarsalan

Almenn afgreiðsla og bensínafgreiðsla
Orkan Hveragerði

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis - Ofur duglegur raðari með skipulagshæfileika
Tannlæknastofa Kópavogs

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur

Laugarvörður-baðvörður-afgreiðslustarf - Kópavogslaug
Kópavogsbær

Strafsmaður í fiskverslun
Fiskur og félagar ehf.