Bónus
Bónus

Okkur vantar Starfsfólk í Bónus á Akureyri!

Ertu hress, jákvæð/ur og til í að vinna með skemmtilegu fólki? Þá gætir þú verið akkúrat manneskjan sem við erum að leita að!

Við leitum að starfsfólki í almenn verslunarstörf í Bónus á Akureyri.


Helstu verkefni eru meðal annars:

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Áfyllingar og frágangur á vörum
  • Að halda versluninni snyrtilegri og flottari
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem fylgja daglegum rekstri verslunar

Við leitum að fólki sem:

  • Er jákvætt, duglegt og þjónustulundað
  • Mætir á réttum tíma og tekur ábyrgð
  • Á auðvelt með að vinna með öðrum
  • Er tilbúið að bretta upp ermar þegar mikið er að gera

Reynsla af verslunarstörfum er kostur en alls ekki skilyrði – við kennum þér það sem þú þarft að kunna.


Langar þig að ganga til liðs við Bónus á Akureyri?

Sæktu um – við hlökkum til að heyra frá þér!

Starfsmenn Bónus eru um 1200 í dag í 33 verslunum, 20 á höfuborgarsvæðinu og 13 út á landi. Bónus er afar stolt af sínu starfsfólki og hafa allir tækifæri til að vinna sig upp í fyrirtækinu. Við viljum að tími starfsfólks hjá Bónus sé lærdómsríkur og ánægjulegur. Við fögnum fjölbreytileika og leggjum okkur fram um að skapa hvetjandi umhverfi fyrir alla starfsmenn.

Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kjarnagata 2, 600 Akureyri
Austursíða 2, 603 Akureyri
Langholt 148724, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar