

Matráður í Öldunni
Auglýst er eftir matráð í eldhús í Öldunni, virkni og hæfingu fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu.
Í Öldunni fer fram starfs- og félagsþjálfun þar sem áhersla er lögð á að viðhalda og auka sjálfstæð vinnubrögð, starfsþrek og félagslega færni sem miðar að því að auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi og á almennum vinnumarkaði. Starfað er samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla, annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum og hefur umsjón með léttum þrifum og þvottahúsi. Eins fer hæfni- og virkniþjálfun fram í eldhúsi sem matráður sinnir.
Æskilegt er að geta hafið störf 1. október 2026.
-
Matráður ber ábyrgð á matseld, innkaupum, skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu í samvinnu við sinn yfirmann.
- Sér um hæfni- og virkniþjálfun í eldhúsi
-
Gætir fyllsta hreinlætis og snyrtimennsku við matargerð og önnur störf í eldhúsi.
-
Þvær þvott og gengur frá.
- Sér um létt þrif á húsnæði
-
Sér um léttar veitingar á fundum, skipulagsdögum o.fl.
-
Matartæknir eða menntun sem nýtist í starfi er æskileg
-
Þekking og reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
-
Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að sýna umhyggju, skilning, virðingu og þolinmæði
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
-
Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
-
Ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
- 36 klukkustunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
Íslenska










