

Vaktstjóri Breiðholtslaug
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur óskar eftir vaktstjóra til starfa í Breiðholtslaug. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.
Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.
Starfsfólk vinnur á sviði íþrótta- og tómstunda og eru lykillinn að því að veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks þjónustu. Lögð er áhersla á jafnrétti, starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýrir verkaskiptingu á milli starfsfólks.
- Sér um skipulagningu vakta og afleysingu vegna fjarvista og veikinda.
- Móttaka og þjálfun nýs starfsfólks á vakt samkvæmt verkferlum (þjálfunaráætlun).
- Hefur eftirlit með húsnæði, áhöldum, leiktækjum og vélbúnaði, kemur ábendingum áleiðis eftir því sem við á ásamt því að lagfæra og þrífa eftir því sem við verður komið.
- Hefur eftirlit með afgreiðslu og kortakerfi ásamt skiptimynt og uppgjöri.
- Sér um innkaup í samráði við forstöðumann.
- Sér um móttöku á vörum og frágangi eða förgun á sorpi.
- Stýrir vaktfundum á 3ja vikna fresti.
- Stýrir neyðaræfingum.
- Þáttaka í vaktstjórafundum og forstöðumannafundum eftir þörfum.
- Ber ábyrgð á í samráði við forstöðumann að stefnum Reykjavíkurborgar sé framfylgt.
- Annast önnur þau törf sem vaktstjóra kunna að vera falin af forstöðumanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans.
Ábyrgð í starfi
- Vaktstjóri ber ábyrgð á vaktinni og er verkstjórnandi þar sem hann hefur umsjón með daglegum störfum starfsfólks. Vaktstjóri heyrir sjálfur undir forstöðumann.
- Yfirumsjón með skipulagningu, eftirliti og mönnun vakta.
- Framkvæmd og eftirlit með öryggismálum, upplýsingar um öryggismál til starfsfólks og gesta.
- Ber ábyrgð á að unnið sé samkvæmt starfs- og verklýsingum og umgengnisreglum.
- Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegu uppgjöri og hefur yfirumsjón með afgreiðslu- og kortakerfi.
- Vaktstjóri ber ábyrgð á að reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sé framfylgt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi sambærilegt stúdents- eða sveinsprófi eða jafngildrar þekkingar á starfssviðinu.
- Nám eða námskeið á sviði stjórnunar eða þjónustumála.
- Reynsla af verk- og starfsmannastjórnun.
- Reynsla af þjónustustarfi.
- Skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þjónustulund.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Almenn tölvukunnátta skilyrði.
- Gott vald á íslensku máli.
- Kunnátta í ensku æskileg.
- Krafa um endurmenntun í skyndihjálp og sérhæft námskeið um björgun úr laug og standast árlegt hæfnispróf laugarvarða.
- Hreint sakavottorð.
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Auglýsing birt18. nóvember 2025
Umsóknarfrestur2. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Sund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Verslunarstarf í Reykjanesbæ
Penninn Eymundsson

Tækniaðstoð og stafrænar lausnir
Atlantik

Starfskraftur afgreiðslu á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Starfsmaður í afgreiðslu í apóteki
Farmasía

Afgreiðslustarf
Bæjarbakarí

Fullt starf í leikfanga/spilaverslun
Margt og Mikið

Jobs in cleaning / Störf við ræstingar
Dictum

Starfsmaður í verslun á Akureyri
Hobby & Sport og Mistra

IT notendaumsjón (IT user support) hjá 66°Norður
66°North

Helgar- og hlutastarf í verslun
BAUHAUS slhf.

Afgreiðsla - Akureyri
Sykurverk Café