

Vaktstjóri á Spa Restaurant
Bláa Lónið leitar að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi í starf vakstjóra á Spa Restaurant. Þessi fallegi veitingastaður er í einstöku umhverfi The Retreat hótelsins og þjónustar eingöngu gesti hótelsins og Retreat Spa. Starfið felur í sér þjónustu og samskipti við gesti, skipulagningu og umsjón með vöktum og mönnun, umsjón með daglegum rekstri og að leiðbeina starfsfólki með það að markmiði að tryggja faglega þjónustu og góðan starfsanda innan teymisins.
Við leitum að einstaklingi með ríka þjónustulund og áhuga á mannlegum samskiptum sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
· Reynsla af þjónustustörfum er nauðsynleg
· Leiðtogahæfni og reynsla af því að leiða teymi er mikill kostur
· Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
· Áreiðanleiki og stundvísi
· Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
· Mjög góð enskukunnátta er skilyrði, íslenskukunnátta er kostur
· Góð almenn tölvukunnátta
· Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 25 ára aldri
Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september, 2025.
Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.
--Enska--
Shift manager—Spa Restaurant
Blue Lagoon is looking for a dynamic and positive individual with excellent customer service skills to join our team as a shift manager at Spa Restaurant, located within The Retreat Hotel.
About the role
The Spa Restaurant is a beautifully designed restaurant in a unique setting, exclusively serving guests of The Retreat Hotel and Retreat Spa. As a shift manager, your role includes providing excellent service and guest relations, overseeing bookings, planning shifts and scheduling staffing, managing day-to-day operations, and guiding the team to ensure high-quality service and a positive work environment.
We are looking for someone who is passionate about service and human interaction, and eager to take an active role in creating memorable experiences for our guests.
Qualifications:
· Excellent customer service skills and a positive attitude
· Previous experience in service-related roles is essential
· Leadership skills and experience in team management are an advantage
· Strong organizational skills and the ability to work independently
· Reliability and punctuality
· Excellent communication skills and a collaborative mindset
· Good English skills are a requirement; Icelandic skills are an advantage
· General computer skills
· Applicants must be at least 25 years of age
The position is full-time and based on a 2-2-3 shift schedule. Ideally, candidates are available to start as soon as possible.
We are accepting applications until September 13th, 2025.
Blue Lagoon is a lively and dynamic workplace that cultivates continuous development and innovation and offers complex challenges. Employees enjoy various benefits, including expertly prepared meals at our canteens, health grants, and various discounts on the company’s products and services.













