Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara á miðstig í 80-100% starf.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í vetur verða nemendur um 230.

Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, samþættingu námsgreina og teymisvinnu. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er að taka fyrstu skrefin í leiðsagnarnámi. Haustið 2021 hóf skólinn markvissa samþættingu skóla- og frístundastarfs og innleiðingu á Uppeldi til ábyrgðar. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur

Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta og/eða miðstigi
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu á yngsta og/eða miðstigi
Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
Vinnur samkvæmt stefnu skólans
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt7. september 2023
Umsóknarfrestur29. september 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar