Dalskóli
Dalskóli
Dalskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig - Dalskóli

Dalskóli í Úlfarsárdal auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stig, tímabundið næsta skólaár 2022-2023 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Dalskóli er samrekinn leik-, grunn- og frístundaskóli með um 600 börnum á leik- og grunnskólaaldri og 140 starfsmönnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Í Dalskóla er mikið um þemabundið smiðjustarf í samfélags- og náttúrugreinum auk samvinnu kennara. Í 7.-10 bekk er verið að þróa faggreinakennslu og þverfagleg samvinnuverkefni í anda aðalnámskrár. Dalskóli er þróunarskóli í leiðsagnarnámi. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem grunnskólakennari
Reynsla af kennslu i grunnskóla mjög æskileg
Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
Löngun til að vinna í teymi
Hæfni í samskiptum
Frumleiki og sjálfstæði
Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu
Helstu verkefni og ábyrgð
Að annast kennslu nemenda.
Að standa vörð um velferð og nám barnanna.
Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir.
Auglýsing birt5. ágúst 2022
Umsóknarfrestur17. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Úlfarsbraut 118-120 118R, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar