Lágafellsskóli
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli

Umsjónarkennari óskast á miðstig

Lágafellsskóli leitar að áhugasömum umsjónarkennara til starfa á miðstigi. Um er að ræða afleysingu til eins árs.

Um 100% starf er að ræða. Ráðið verður í stöðuna frá 1.ágúst 2021.

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er samrekinn leik- og grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara með áherslu á yngsta- og miðstig grunnskóla
Vilji og hæfni til teymisvinnu með öðrum kennurum
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt19. júlí 2021
Umsóknarfrestur3. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar