Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi

Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar óskar eftir að ráða drífandi einstakling til starfa á framkvæmdasviði sveitarfélagsins. Framkvæmdasvið sinnir fjölbreyttum verkefnum í öllum Skagafirði, tengt framkvæmdum, eftirliti og almennri þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.

Um 100% starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Starfssvið:

Starfið er fjölbreytt og helstu verksvið eru umsjón með öllu sem tengist landbúnaðar- og umhverfismálum í sveitarfélaginu.

Tengt landbúnaðarmálum eru verkefnin m.a. afgreiðsla umsókna landbúnaðarleyfa og leigusamninga um lönd sveitarfélagsins, eftirlit með lausagöngu búfjárs og viðhaldi girðinga, umsjón fjallskila fyrir hönd sveitarfélagsins og samskipti við fjallskilanefndir.

Undir umhverfismál fellur m.a. umsjón með sorphirðu til heimila, þróun og bestun á ferlum tengdum sorphirðu, umsjón með hunda- og kattahaldi, skipulagning refa- og minkaveiðar og vera tengiliður við veiðifélög í Skagafirði og ýmis skýrslugerð vegna umhverfismála sveitarfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
  • Framhaldsskólamenntun. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Góð þekking á staðháttum héraðsins er æskileg.
  • Góð færni í textagerð og framsetningu gagna ásamt almennri tölvukunnáttu.
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Skilyrði er að starfsmaður hafi ríka þjónustulund, sýni lipurð í mannlegum samskiptum, búi yfir frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum, ásamt jákvæðu hugarfari.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Arnar Friðriksson, forstöðumaður Framkvæmdasviðs, [email protected].

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini, ferilskrá og kynningarbréf skal fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar