

UMFÍ - Bókari
UMFÍ leitar eftir reyndum og öflugum bókara í 50-75% starf í okkar frábæra starfsmannateymi. Möguleiki er á 100% starfshlutfalli með öðrum verkefnum sem falla ekki undir störf bókara.
UMFÍ er fjölskylduvænn, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður sem leggur áherslu á samstarf, bæði innan sem utan hreyfingar. Starfsemi UMFÍ er fjölþætt. UMFÍ starfrækir sem dæmi Skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði, skipuleggur og heldur ýmisskonar íþróttaviðburði eins og Unglinglandsmót UMFÍ og Landsmót UMFÍ 50+, auk fleiri viðburða og sinnir þjónustu við sambandsaðila. Auk þess standa samtökin fyrir fjölda annarra verkefna með beinum eða óbeinum hætti.
-
Almenn bókhaldsstörf
-
Skráning og bókun reikninga
-
Launavinnsla
-
Reikningagerð og innheimta
-
Uppgjör, ársreikningagerð og rekstrargreiningar til stjórnenda
-
Skil á opinberum gjöldum
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Menntun, þekking og reynsla sem nýtist í starfi
-
Þekking á bókhaldskerfum er nauðsynleg
-
Góð greiningahæfni og þekking á Excel
-
Fagleg vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði og jákvætt viðhorf til breytinga
-
Hreint sakavottorð í samræmi við íþróttalög








