
Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli í Fellabæ er grunnskóli þar sem lögð er áhersla á að efla bókvit, verkvit og siðvit jöfnum höndum. Í skólanum eru um 100 nemendur og þeim er skipt niður á þrjú stig; yngsta stig ( 1. – 4. bekk), miðstig ( 5. – 7. bekk) og unglingastig (8. – 10.) bekk. Á hverju stigi starfa kennarar og annað fagfólk saman í teymum. Við skipulag kennslu er horft til þess að nemendur eru á hverjum tíma mislangt komin á mismunandi sviðum þroska. Nemendur hafa einnig mismunandi styrkleika, áhugasvið og getu. Námi og öðru starfi skólans er ætlað að stuðla að alhliða þroska nemandans út frá forsendum og hæfileikum hvers og eins. Skólastarfið miðast við að stuðla jafnt að tilfinningalegum og félagslegum þroska sem og vitsmunalegum.

Tungumála og stærðfræðikennari á unglingastig óskast
Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir tungumála og stærðfræðikennara fyrir skólaárið 2026/2027 með möguleika á framtíðarstarfi. Starfshlutfall getur verið samkomulag. Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026.
Fellaskóli er notalegur lítill skóli með um 80 nemendur. Við störfum samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Uppeldisstefna skólans er jákvæður agi. Við leggjum áherslu á útinám og höfum verið að þróa þá kennslu á öllum skólastigum undanfarin ár þar sem um samþættingu námsgreina og teymisvinnu er að ræða.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði i við skólastjórnendur og aðra kennara.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Stuðla að vegferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Góð hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Góð skipulagshæfni, jákvæðni, frumkvæði og reynsla.
- Góð íslenskukunnátta.
- Vilji til að starfa í teymum.
- Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
Heilsueflingarstyrkur
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Einhleypingur 2, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiKennslaSamviskusemiSkipulagTeymisvinnaÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lausar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Kirkjuból - leiðbeinandi
Garðabær

Óskum eftir að ráða Leikskólakennara eða starfsmann/konu á leikskólann Vífilsholt í Garðabæ
Hjallastefnan

Viltu móta framtíðina í þjálfun flugleiðsöguþjónustu – leitum eftir kennsluráðgjafa
Avians

Lindaskóli óskar eftir stærðfræðikennara á unglingastig
Lindaskóli

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli