

Laus staða íþróttakennara í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli auglýsir eftir öflugum íþróttakennara til að bætast í hópinn okkar skólaaárið 2026 - 2027.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 frábæra nemendur og um 75 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf.
Í Kópavogsskóla eru allir kennarar og nemendur í 1. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.
Upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.
- Kennsla í íþróttum og sundi
- Skipulagning náms og kennslu skv. aðalnámskrá
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinnur í teymi með öðrum kennurum
- Stuðla að velferð nemenda
- Leyfisbréf til kennslu og réttindum til kennslu í sundi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð færni í íslensku
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á Uppeldi til ábyrgðar
- Stundvís og áreiðanleiki er skilyrði
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Íslenska










