

Tónlistarstjóri Óperunnar
Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu tónlistarstjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og í þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Tónlistarstjóri ber ábyrgð á helstu tónlistarþáttum starfseminnar í nánu samstarfi við óperustjóra og aðra lykilstarfsmenn og tekur þátt í mótun dagskrár. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á víðtæka tónlistarlega kunnáttu. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. apríl 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með tónlistarþætti óperuverkefna og söngþjálfun einsöngvara
- Stjórnun kórs/hljómsveitar á æfingum/sýningum
- Þátttaka í áheyrnarprufum og skipulag þeirra
- Skipulagning og samhæfing tónlistaræfinga
- Vinna með gestastjórnendum, aðstoða þá eftir þörfum og geta leyst af ef aðstæður krefja
- Tækifæri til að stjórna ýmsum uppfærslum og verkefnum
- Getur leyst repetitör af eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tónlist
- Reynsla af starfi í óperuhúsi sem repetitör, aðstoðarhljómsveitarstjóri eða annað sambærilegt
- Góð þekking á söngröddinni og óperubókmenntum, reynsla af samstarfi við söngvara og hæfni til að leiða tónlistarstarf
- Góð hæfni til skipulags- og áætlanagerðar
- Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni er mikilvæg
Fríðindi í starfi
- Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Tækni- og þjónustustjóri
Advania

Verkefnastjóri
ÍAV

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot Specialist and Facility Maintenance Manager
NEWREST ICELAND ehf.

Blöndunarstjóri - Akureyri
Möl og Sandur

Tæknimaður - Ljósleiðari
TRS Raf ehf

Starf í útungunarstöð á Hellu
Holta

Verkefnastjóri stjórnsýslu og rannsókna
Háskólinn á Akureyri

Flæðisstjóri / Rafvirki Farangurskerfis
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri / Vélahönnuður
Héðinn

Meindýraeyðir óskast
Varnir og Eftirlit

Starfsfólk í þjónustudeild
Hitatækni ehf