

Sérfræðingur í bókhaldi
Þjóðleikhúsið leitar að sérfræðingi sem hefur góða reynslu af bókhaldsstörfum til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði reikningshalds. Við leitum að skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi og skilningi á rekstri og fjárhag, sem hefur ánægju af að vinna með öðrum og vill taka virkan þátt í framþróun á fjármálasviði.
Laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1.maí n.k. og um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn dagleg bókhaldsstörf og afstemmingar
- Þátttaka í gerð verkferla reikningshalds og eftirfylgni með þeim
- Samskipti og aðstoð við stjórnendur og starfsfólk, birgja og aðra hagsmunaaðila
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði, t.d. þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla og öðrum uppgjörstengdum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum á sviði bókhalds
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta t.d. í bókhaldskerfum og excel, þekking á umhverfi ríkisstofnana er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni, jákvætt viðmót og þjónustulund.
- Frumkvæði, nákvæmni og fagleg vinnubrögð
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
- Ferilskrá ásamt umsagnaraðilum og ítarlegt kynningarbréf
Fríðindi í starfi
- Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraHugmyndaauðgiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniNýjungagirniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVandvirkniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Fulltrúi í bókhald - Sumarstarf
Íslandshótel

KPMG leitar að nýliðum á endurskoðunarsviði
KPMG á Íslandi

Orkubú Vestfjarða - Bókari
Orkubú Vestfjarða ohf

Skrifstofustjóri - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sumarstörf hjá BL
BL ehf.

Accountant
Verne

Bókhald
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Bókari í hagdeild
Samskip

Bókhald
Hagvangur