Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð

Tómstundafulltrúi og framkvæmdastjóri HSS

Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa Strandabyggðar og framkvæmdastjóra Héraðssambands Strandamanna (HSS) í 100% starfshlutfalli.

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér faglega umsjón með tómstunda- og æskulýðsmálum sveitarfélagsins og daglega umsýslu og framkvæmd verkefna HSS í nánu samstarfi við stjórn sambandsins, íþróttafélög og aðra samstarfsaðila. Starfið veitir tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu og á svæðinu.

Tómstundafulltrúi er næsti yfirmaður starfsfólks á sviði tómstundastarfs og ber ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við fjárheimildir sveitarfélagsins. Framkvæmdastjóri HSS sér um daglegan rekstur sambandsins og framkvæmd viðburða þess. Æðsti yfirmaður er sveitarstjóri Strandabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með tómstunda-, forvarnar- og æskulýðsmálum sveitarfélagsins
  • Skipulag og þróun frístundastarfs, m.a. félagsmiðstöðvar og sumarnámskeiða
  • Stuðningur við íþrótta- og félagasamtök og samstarf við skóla og íþróttamannvirki
  • Dagleg umsýsla og samskipti vegna starfsemi HSS
  • Skipulag og framkvæmd móta og viðburða á vegum HSS
  • Samskipti við aðildarfélög, UMFÍ, ÍSÍ og sérsambönd
  • Umsjón með kynningu, upplýsingamiðlun og fundarstarfi
  • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjórn eða sveitarstjóra eða stjórn HSS
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi t.d á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða kennslu
  • Reynsla af skipulagningu og verkefnastjórnun er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Leiðtogahæfileikar, þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og almenn tölvufærni
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar