

Laus staða frístundaráðgjafa í Reykhólahreppi
Reykhólahreppur auglýsir laust starf frístundaráðgjafa hjá sveitarfélaginu. Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og skapandi starfsmanni sem hefur gaman af því að vinna með börnum og ungmennum til að halda utan um daglega starfsemi og skipulag frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar á Reykhólum. Um er að ræða 50-100% starf.
Dagleg umsjón með frístund og félagsmiðstöð á opnunartíma þeirra
Skipulag frístundastarfs og starfsemi félagsmiðstöðvar í samráði við yfirmann
Þátttaka í þróun og uppbyggingu frístundastarfs og starfsemi félagsmiðstöðvar
Skipulag sumarnámskeiða á vegum Reykhólahrepps undir leiðsögn yfirmanns
Tryggja börnum og ungmennum jákvætt og heilnæmt umhverfi til leik og starfa
Leiðsögn og umsjón með starfsmönnum frístundar, félagsmiðstöðvar og sumarnámskeið eftir þörfum
Samskipti og upplýsingagjöf vegna starfsemi frístundar og félagsmiðstöðvar eftir þörfum
Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
Framhaldskólapróf en háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
Reynsla af störfum með börnum og ungmennum
Frumkvæði, hugmyndaauðgi og sveigjanleiki í störfum
Skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
Þjónustulund, heiðarleiki og framúrskarandi færni í samskiptum
Góð almenn tölvukunnátta
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk, tómstundastyrk og nýtur gjaldfrjáls leikskóla. Á Reykhólum er húsnæði laust til leigu.
Íslenska
Enska










