Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Leiðbeinandi í Hádegishöfða Fellabæ

Leikskólinn Hádegishöfði auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðbeinanda í 100% stöðugildi. Um tímabundna ráðningu að ræða með möguleika á framtíðarstarfi. Hlutastarf kemur einnig til greina. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Hádegishöfði er þriggja deilda leikskóli sem rekinn er í nýju og glæsilegu húsnæði að Fellabrún 9 í Fellabæ. Á Hádegishöfða er unnið að innleiðingu jákvæðs aga og starfar leikskólinn í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Hádegishöfði er skóli á grænni grein og flaggar grænfána Landverndar.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna undir leiðsögn stjórnenda
  • Taka þátt og aðstoða við ummönnun barnanna
  • Aðstoða börn m.a. við matartíma og útivist
  • Vinna með öðru starfsfólki að velferð og þroska barnanna
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn leikskólastjóra og deildarstjóra
  • Samstarf og samvinna við foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg en ekki skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð líkamleg heilsa
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Styttri vinnuvika
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Möguleiki á afslætti af vinnuskyldu fyrir leikskólakennaranema
  • Heitar máltíðir í hádeginu snæddar með börnunum
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur10. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fellabrún 9
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar