Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Tímavinnustarf í neyðarskýli

Vesturmiðstöð leitar að starfsfólki í tímavinnu í neyðarskýlin að Grandagarði og Lindargötu 48. Um blandaðan vakttíma er að ræða, þ.e. dag-, kvöld-, helgar og næturvaktir.

Hlutverk og meginmarkmið neyðarskýlanna er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundið skjól og viðeigandi aðstoð. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum dvalargesta á heildrænan og einstaklingsmiðaðan hátt. Hugmyndafræði skaðaminnkunar skal vera höfð að leiðarljósi í þjónustu við gesti neyðarskýla Reykjavíkurborgar. Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka gesta neyðarskýlisins
  • Veita gestum félagslegan stuðning
  • Umönnun og eftirlit
  • Framleiðsla matar og þrif
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við notendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Reynsla og/eða áhugi á vinnu með karlmönnum með fjölþættan vanda
  • Þekking og/eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta A1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt8. október 2024
Umsóknarfrestur17. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Lindargata 48, 101 Reykjavík
Grandagarður 1A, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar