Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Hæfingarstöðin

Hæfingarstöðin að Bæjarhrauni óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í fullt starf. Þar fer fram þjónusta við fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Lögð er áhersla á skipulagða vinnu í grunn- og skynörvun annarsvegar og hins vegar þjálfun í notkun óhefðbundinna tjáskipta, ávallt með áherslu á notkun nýjustu tölvutækni.

Í boði er framtíðarstarf í 100% dagvinnu. Um er að ræða spennandi-, lærdómsríkt- og framsækið starf með fjölbreyttum verkefnum. Lögð er áhersla á góða aðlögun í starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
Áhugi á málefnum fatlaðs fólk.
Samstarf- og skipulagshæfileikar.
Samviskusemi, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Taka þátt í starfi með þjónustunotendum með áherslu á að auka færni í óhefðbundnum tjáskiptum.
Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
Setja upp og fylgja eftir einstaklingsáætlunum sem og starfsáætlun.
Þátttaka í erlendu samstarfi.
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Auglýsing birt10. janúar 2022
Umsóknarfrestur24. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarhraun 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar