Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.
Þjónustustjóri umbóta og sérverkefna
Viltu taka þátt í að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir starfsfólk og viðskiptavini fyrirtækja framtíðarinnar?
Þrífstu best í teymisvinnu? Ert þú jákvæður, skipulagður og útsjónarsamur einstaklingur sem leggur metnað í að létta viðskiptavinum okkar lífið með góðri þjónustu? Ef þetta hljómar vel þá er staða þjónustustjóra fyrir þig.
Þjónustustjóri umbóta og sérverkefna ber ábyrgð á að leiða og veita framúrskarandi þjónustu Daga til viðskiptavina ásamt því að leiða ferlavinnu og stöðugar umbætur fyrir hönd teymisins. Þjónustustjóri ber ábyrgð á uppsetningu og úttekt á verkefnum og þarf að þekkja innihald tilboða og samninga til þess að geta uppfyllt væntingar viðskiptavinar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og greining á ferlum teymisins og umbætur á þeim
- Innleiðing breytinga, nýrra verkefna og verklags
- Góð samskipti við viðskiptavini
- Uppsetning og skipulag verkefna
- Eftirlit með störfum starfsmanna og gæði vinnu þeirra
- Eftirlit með gæðum þjónustunnar og ráðgjöf til viðskiptavina
- Umsjón með innkaupum tækjum og tólum
- Almenn aðstoð og stjórnun starfsmanna Daga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ferlavinnu og umbótaverkefnum
- Góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
- Rík þjónustulund
- Íslenska talað og ritað mál
- Enskukunnátta nauðsynleg
- Word og Excel kunnátta
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur27. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar