
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Þjónusturáðgjafi í Vík í Mýrdal
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í útibúi Arion banka í Vík í Mýrdal. Leitað er eftir aðila sem hefur ánægju af því að veita framúrskarandi bankaþjónustu og er tilbúinn að koma inn í árangursdrifið vinnuumhverfi.
Starfshlutfall er sveigjanlegt, 55–100%, eftir samkomulagi. Mikilvægt er að viðkomandi geti verið við störf á opnunartíma útibúsins sem er frá kl. 12:00–15:30 alla virka daga, en utan þess tíma býður starfið upp á ákveðinn sveigjanleika eftir samkomulagi um starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf í gegnum síma, tölvupóst og í útibúi
- Móttaka viðskiptavina
- Kennsla og kynning á stafrænni þjónustu bankans
- Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
- Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Sveigjanleiki og gott viðmót
- Frumkvæði, söludrifni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfið
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ránarbraut 1, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka
Arion banki

Fjármálaráðgjafi í Vestmannaeyjum
Landsbankinn

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Launaráðgjafi í Mannauðslausnum
Advania

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Sölu- og þjónusturáðgjafi á sölusviði
Skeljungur ehf

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Sérfræðingur í þjónustu og sjálfvirknivæðingu
Creditinfo