

Þjónustufulltrúi viðskiptaþjónustu innflutnings
Jónar Transport er leiðandi flutnings- og tollmiðlari á íslenska flutningamarkaðinum. Jónar hafa á að skipa reynslumiklu starfsfólki með ríka þjónustulund og frumkvæði í starfi. Gildi Jóna eru Áreiðanleiki – Frumkvæði – Þekking og Léttleiki. Við bjóðum upp á fjölbreytt starf í krefjandi umhverfi. Starfsemi Jóna samanstendur af traustum og stórum viðskiptavinahópi, öflugum samstarfsaðilum á íslandi og erlendis og framúrskarandi þjónustulund starfsmanna með mikla samskiptahæfni
Jónar Transport óska eftir að ráða þjónustufulltrúa í viðskiptaþjónustu fyrirtækisins. Í starfinu felst m.a. tilboðsgerð, utanumhald um sendingar í innflutningi, ásamt fjölmörgu öðru.
Við sækjumst eftir einstaklingi með mikla þjónustulund og góða samskiptahæfilega. Starfshlutfall er 100%. Unnið er í dagvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, Verslunarpróf, próf frá viðskiptaskólum og/eða góð, hagnýt reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Mjög rík þjónustulund.
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Helstu verkefni
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila hér heima sem og erlendis.
- Ráðgjöf við flutninga til viðskiptavina.
- Eftirfylgni með sendingum, tilboðsgerð og tilfallandi verkefni.
- Veita framúrskarandi og persónulega þjónustu við alla viðskiptavini.
Við hvetjum áhugasama einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Jónar Transport.
Íslenska
Enska










