HL Adventure
HL Adventure
HL Adventure

Þjónustu og Verkefnafulltrúi í MICE

Vegna aukinna umsvifa leitar HL Adventure að reynslumiklum verkefnastjóra. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu af skipulagningu hvataferða fyrir erlenda markaði.

Starfið felst í að skipuleggja og selja hvataferðir og aðra viðburði fyrir erlenda aðlila í gegnum samskipti við erlendar ferðaskrifstofur. Verkefnafulltrúi er ábyrgur fyrir skipulagningu, utanumhald og eftirvinnslu verkefna og viðburða á vegum fyrirtækisins.

Við erum að leita að einstakling með margra ára reynslu í hvataferðum. Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikum, mikils metnaðar og þjónustulundar.

Ef þú ert með brennandi áhuga á ferðalögum, alþjóðlegum verkefnum og viðburðaskipulagi, þá gæti þetta verið sú áskorun sem þú hefur verið að leita að! Við bjóðum upp á starfsumhverfi þar sem þú getur nýtt þína reynslu og hæfileika í samstarfi við alþjóðlega viðskiptavini og samstarfsaðila. HL Adventure er félag sem setur mikla áherslu á gæði, fagmennsku og góða þjónustu við viðskiptavini.

Komdu og vertu hluti af okkar vaxandi teymi! Sendu okkur ferilskrá og kynningarbréf í dag og við tökum þátt í að móta eftirminnilegar ferðir og upplifanir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Áhersla er lögð á aðila með margra ára reynsla í skipulagningu og framkvæmd hvataferða og viðburða á Íslandi, með sterka þekkingu á landinu og þeirri þjónustu sem er hér í boði.

 

Helstu ábyrgðarsvið í starfinu:

  • Samskipti við erlendar ferðaskrifstofur og innlenda birgja til að tryggja að ferðir og viðburðir séu með þeim hætti sem þeir eiga að vera 
  • Skipulagning og sala á hvataferðum og öðrum viðburðum, þar sem þú tekur þátt í allri ferlinu frá upphafi til enda
  • Utanumhald og eftirvinnsla verkefna og viðburða, sem felur í sér að tryggja að allt gangi eftir áætlun og að allar kröfur viðskiptavina séu uppfylltar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar sem tryggja góð tengsl við bæði erlenda og innlenda samstarfsaðila
  • Margra ára reynsla í skipulagningu og framkvæmd hvataferða og viðburða
  • Metnaður og þjónustulund sem stuðla að því að skapa ógleymanlega upplifanir fyrir viðskiptavini
  • Hæfni til að vinna með erlendum ferðaskrifstofum og tryggja að viðburðir og ferðir séu í samræmi við óskir og þarfir viðskiptavina

 

  • Reynsla af verkefnastjórnun og góð yfirsýn yfir hvernig á að skipuleggja viðburði með öllum smáatriðum í huga
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni sem tryggja að þú haldir utan um verkefnin á hverjum tíma
  • Menntun sem nýtist í starfi, hvort sem það er á sviði ferðamál, viðskipta eða öðru sem tengist starfseminni
  • Framúrskarandi enskukunnátta, bæði tal- og ritfærni, sem og kunnátta í öðrum tungumálum, sérstaklega þýsku, er mikill kostur
Auglýsing birt18. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÞýskaÞýska
Valkvætt
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.AlþjóðaviðskiptiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ViðburðastjórnunPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar