

Þjónn // vaktstjóri óskast
Þjónn óskast – Matur og Drykkur
Við leitum að reynslumiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi í stöðu vaktstjóra á Mat og Drykk.
Matur og Drykkur er veitingastaður niður á Granda sem býður upp á íslenskan mat með nútímalegu ívafi. Við notum staðbundið hráefni og eldum eftir hefðum með skapandi nálgun. Staðurinn er Michelin-mæltur og leggur áherslu á vandaðan mat, góða þjónustu og sterka tengingu við íslenska matarmenningu.
Helstu verkefni
-
Umsjón með vaktaplani og daglegri skipulagningu í sal
-
Þjálfun og leiðsögn starfsfólks
-
Samskipti við gesti, eldhús og bar
-
Umsýsla með bókanir og pantanir
-
Þátttaka í skrifstofuvinnu og utanumhald rekstrarvara
Við leitum að manneskju sem
-
Hefur góða reynslu af veitingaþjónustu
-
Er skipulögð, sjálfstæð og með góða samskiptahæfni
-
Metnað fyrir mat, drykk og gestaupplifun.
Við bjóðum
-
Fast starf með 140 klst mánaðarlega (þ.m.t. 10 klst skrifstofuvinna)
-
Skýrt skipulag: frí á mánudögum og þriðjudögum, sveigjanleg vinnufyrirkomulag













