Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Teymisstjóri - Heimahjúkrun HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi í 100% ótímabundið starf teymisstjóra í heimahjúkrun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið er stýring teymis sem veitir víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna andlegrar og líkamlegrar skerðingar eða öðrum langvinnum sjúkdómum. Hann ber ábyrgð á gerð þjónustuplans teymisins og samábyrgð með öðrum teymum á heildarþjónustu heimahjúkrunar. Teymisstjóri styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem og samstarfsfólk. Hann skipuleggur og sér um verkstjórn og framkvæmd þeirrar hjúkrunar sem þörf er á hverju sinni hjá skjólstæðingahópi teymisins. Hann tryggir góð samskipti og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi. Náið samstarf er við móttökuteymi varðandi umfang innskrifta.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
Fjölbreytt reynsla í hjúkrun
Góð samskipta- og skipulagshæfni
Faglegur metnaður og reynsla af teymisvinnu
Gilt ökuleyfi og hreint sakavottorð
Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt7. júní 2022
Umsóknarfrestur27. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar