
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Teymisstjóri dreifkjarna
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til að taka að sér starf teymisstjóra dreifkjarna. Dreifkjarninn er hluti af sértækri stoðþjónustu á vegum Velferðarsviðs Kópavogs. Þjónustan er fyrir fólk í sjálfstæðri búsetu sem þarf umtalsverða aðstoð í daglegu lífi á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Starf teymisstjóra felst meðal annars í því að veita einstaklingsmiðaða aðstoð til notenda og hafa yfirsýn yfir stuðningsþarfir og óskir þeirra. Teymisstjóri kemur að verkstjórn starfsmanna og hefur umsjón með að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við óskir notenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Gerð er krafa um haldgóða reynslu af starfi með fötluðu fólki.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tekur þátt í faglegu starfi í samvinnu við deildarstjóra og forstöðumann.
Kemur að gerð og eftirfylgd einstaklingsmiðaðra þjónustuáætlana.
Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Auglýsing birt8. mars 2023
Umsóknarfrestur21. mars 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hörðukór 10, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (6)

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Ráðgjafi VIRK á Höfuðborgarsvæðinu
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali

Söluráðgjafi hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni