Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Textílkennari óskast vegna forfalla

Textíl- og myndmenntakennari óskast

Snælandsskóli er heildstæður 450 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum.

Skólinn er réttindaskóli Unicef en hefur auk þess lagt mikla áherslu á umhverfismál og fengið Grænfánann níu sinnum auk þess að vera fyrsti grunnskóli á Íslandi með heilsustefnu. Einkunnarorð skólans eru: Viska, virðing, víðsýni og vinsemd.

Vegna forfalla er laus staða listgreinakennara með 13 stundir í textílmennt á öllum stigum og 8 stundir í myndmennt á yngsta stigi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Grunnskólakennari með sérhæfingu í textílmennt
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg

Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FG.

Upplýsingar um starfið veitir Magnea Einarsdóttir skólastjóri í s. 441 4202 og 698 0828.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Auglýsing birt4. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar