
Selós ehf
Selós er fyrirtæki sem starfar á innréttingamarkaði og hefur byggt upp sterka stöðu á undanförnum árum. Félagið er umboðsaðili fyrir innréttingar frá Taumona og þjónar verktökum, hönnuðum og öðrum fagaðilum sem gera kröfur um gæði og fagmennsku. Selós hefur starfað á markaðnum um árabil og leggur áherslu á traust, áreiðanleika og vönduð vinnubrögð í öllum sínum verkefnum. Félagið sér um allt ferlið, frá ráðgjöf og sölu til afhendingar og uppsetningar innréttinga.

TAUMONA REYKJAVIK – SÖLUSTJÓRI INNRÉTTINGA
Sölustjóri – tækifæri fyrir öflugan liðsmann
Hér er tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem vill stýra eigin árangri, byggja upp viðskiptasambönd og njóta góðra tekna í samræmi við framlag sitt.
Við höfum byggt upp sölu- og sýningarsal sem er í fremstu röð. Nú leitum við að þeirri manneskju sem kemur inn, tekur ábyrgð á tækifærinu og nýtir það til fulls.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sölu- og markaðsstarf á verkatakamarkaði
- Byggja upp tengsl, traust og sterka stöðu á markaðnum
- Greina markaðinn og sækja réttu viðskiptavinina
- Halda kynningar fyrir verktaka, hönnuði og aðra lykilaðila í greininni
- Loka sölum og tryggja hnökralaust ferli yfir til verkefnastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur metnað, frumkvæði og raunverulegan vilja til að ná árangri
- Kjark til að sækja viðskipti og loka þeim
- Byggir upp traust og langtímasambönd við viðskiptavini
- Tekur ábyrgð á eigin árangri og lætur til sín taka
Fríðindi í starfi
- Sýningarsalur í fremstu röð sem gefur þér skýrt forskot
- Vinnustaður í mótun – þú hefur raunveruleg áhrif á hvernig hlutirnir þróast
- Sterkur grunnur sem styður þig og vinnur með þér að sameiginlegum markmiðum
- Beint samband milli framlags og tekna – metnaður og frumkvæði skila sér
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Síðumúli 16-18 16R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Delivery Advisor - Reykjavik
Tesla

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri
Gatula ehf.

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel
VERDI Ferðaskrifstofa

Sölumaður á matvörusviði
Danól