Krýna ehf
Krýna ehf
Krýna ehf

Tanntæknir eða aðstoðarmaður tannlæknis - Spennandi starf

Starf tanntæknis/aðstoðarmanns tannlæknis er spennandi og fjölbreytt. Verkefnin eru skemmtileg en krefjandi. Á stofunni starfar metnaðarfullt teymi tannlækna, tannfræðinga, tannsmiða, tanntækna, aðstoðarfólks og skrifstofufólks sem saman vinnur að því að veita fyrsta flokks tannlæknaþjónustu í notalegu, fallegu og skemmtilegu umhverfi í nýinnréttuðu húsnæði stofunnar að Fellsmúla 26 5. hæð (Hreyfilshúsið).

Vinnustaðurinn er reyklaus.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða við tannlæknastól, sjá um sótthreinsun tækja og verkfæra, sinna samskiptum við skjólstæðinga og skráningu gagna. Tilfallandi símsvörun, mótttökustörf, pantanir auk ýmissa annarra verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Tanntæknamenntun er kostur en ekki skilyrði.
  • Reynsla af störfum á tannlæknastofu er kostur en ekki skilyrði.
  • Íslenska eða góð enskukunnátta er skilyrði.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Mikil þjónustulund og hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni og áhugi á að tileinka sér nýja hluti.
Auglýsing birt2. október 2025
Umsóknarfrestur16. október 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Grunnfærni
Staðsetning
Fellsmúli 26, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Aðstoð á tannlæknastofuPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TanntæknirPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar