Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Tæknistjóri þróunarinnviða

Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar?

Tæknistjóri þróunarinnviða (DevOps sérfræðingur)

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar eftir reynslumiklum tæknistjóra þróunarinnviða sem verður hluti af teymi sem vinnur markvisst að því að einfalda og bæta rekstur á núverandi hugbúnaði og kerfum sem tengjast sviðum Reykjavíkurborgarinnar. Meðal verkefna er að taka við hugbúnaðarlausnum úr þróun og styðja við að setja í rekstur. Tæknistjóri þróunarinnviða tekur að auki þátt í þróunarvinnu með það að markmiði að tryggja rekstrarþætti hugbúnaðarlausnar/kerfis, ásamt því að sinna aðlögun minni hugbúnaðarlausna að þörfum sviða Reykjavíkurborgar.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið skiptist í 6 einingar:

Stafræn Reykjavík

Skrifstofa þjónustu og umbreytinga

Upplýsingatækniþjónusta (sem tæknistjóri þróunarinnviða mun tilheyra)

Upplýsinga- og skjalastýring

Gagnaþjónusta

Skrifstofa sviðsstjóra

Borgin hefur blásið til sóknar til að hraða stafrænum umbreytingum til næstu þriggja ára með græna planinu. Græna planið er metnaðarfullt plan til að draga úr umhverfisáhrifum, skipuleggja græn hverfi og auka framboð stafrænna lausna með notendamiðaðri nálgun. Þannig bregst borgin við aukinni kröfu og þörfum borgarbúa á stafrænum lausnum og auknu aðgengi að gögnum og bættri þjónustu á netinu.

Stafrænar lausnir draga úr pappírsnotkun, umferð og tímasóun sem og auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri hennar.

Ef þú vilt vinna á faglegum, skemmtilegum vinnustað þar sem helsti hvatinn eru umbætur á þjónustu fyrir borgarbúa, krefjandi viðfangsefni og nýsköpun þá er Þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar mögulega rökrétt framhald á starfsferlinum þínum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi samanber tölvunarfræði eða mikla reynslu í starfi í rekstri og þróunarinnviðum.
Góð reynsla af teymisvinnu.
Góð þekking á CI/CD ferlum með Docker og Kubernetes.
Þekking á Infrastructure-as-a-Code aðferðum og tólum s.s. Terraform.
Reynsla af aðferðum og þróun á sjálfvirkum prófunum (QA)
Mikill áhugi á stafrænum lausnum.
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
Góð íslensku og enskukunnátta.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hópastarfi.
Víðsýni og lausnamiðuð hugsun.
Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Byggir upp þróunarinnviði fyrir þróunarteymi (dev, stage, prod).
Uppsetning þróunar- og rekstrarpípna í Azure DevOps.
Hefur eftirlit með að allir þróunarinnviðir séu starfhæfir.
Tryggir rekstur á þróunarinnviðum.
Tryggir áframhaldandi framþróun á framleiddum vörum.
Styður við og samhæfir þróunarteymin til að nota sama verklag og þróunarinnviði.
Tryggir að uppsetning útgáfna gangi hnökralaust fyrir sig.
Auglýsing birt19. febrúar 2021
Umsóknarfrestur6. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar