![TACTICA](https://alfredprod.imgix.net/logo/d5fde0d3-f961-4652-87c4-5b647d5e68ec.png?w=256&q=75&auto=format)
TACTICA
TACTICA er upplýsingatæknifyrirtæki á íslenskum markaði í örum vexti sem sinnir fjölbreyttum störfum í tölvu- og vefþjónustu á fyrirtækjamarkaði.
Markmið TACTICA eru meðal annars að vera alhliða þjónustuaðili sinna viðskiptavina og veita þeim persónusniðna og góða þjónustu. TACTICA rekur hysingar.is sem er meðal stærstu hýsingaraðila á Íslandi og hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna.
Félagið var stofnað 2012 og höfum frá upphafi kappkostað að hafa vinalegt og gott starfsumhverfi.
Sérfræðingur í tækniþjónustu
Ert þú reynsluboltinn sem kann allt, getur allt og leysir öll heimsins tæknivandamál?
Tilbúinn að ganga í öll verk, ertu góður að tala við fólk, skilur tölvur betur en flestir og líður aldrei betur en þegar þú hefur leyst krefjandi vandamál.
Þá erum við að leita að þér í teymið okkar í Fjörðinn!
Helstu verkefni og ábyrgð
Við hjá Tactica erum með fjölbreytt starfsumhverfi og fáum til okkar allt frá einföldum til krefjandi verkefna.
Við sinnum öllum helstu verkefnum tengdum upplýsingatækni og leitum að starfsmanni sem hefur þekkingu á
- Tölvum
- Tölvukerfum
- Netumhverfum
- Skýjaþjónustum
- Og öllu öðru sem tengist tæknimálum!
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er krafa
- Samskiptahæfni
- Geta unnið í teymi og sjálfstætt
- Sterk tölvukunnátta og hæfileiki til að aðstoða aðra við upplýsingatæknivandamál
- Lausnamiðað hugarfar
-
Þekking á Windows og netkerfum
- Þekking á Microsoft lausnum
- Þekking á Google lausnum
- Bakgrunnur sem kerfisstjóri er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Farsímaáskrift og nettenging
- Strangheiðarlegur heimilismatur í hádeginu
- Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing stofnuð28. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Fjarðargata 15A, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHugmyndaauðgiJákvæðniMannleg samskiptiNýjungagirniÖkuréttindiReyklausSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVandvirkniÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)