Festi
Festi
Festi

Tæknimaður – kassakerfi og þjónusta

Viltu vinna hjá framsæknu fyrirtæki sem leggur áherslu á tækninýjungar og þjónustar fjölda viðskiptavina á hverjum degi?

Upplýsingatæknideild Festi leitar að lausnamiðuðum og þjónustuliprum tæknimanni, í teymi sérfræðinga, til að sinna uppsetningu og þjónustu við kassakerfi og jaðartæki í verslunum og á þjónustustöðvum hjá rekstrarfélögum Festi hf. – þar á meðal eru Krónan, N1, Lyfja og ELKO.

Helstu verkefni

  • Uppsetning, þjónusta og bilanagreining á afgreiðslukössum og tengdum jaðartækjum
  • Innleiðing og stuðningur við LS Central for retail kassakerfi.
  • Vinna á vettvangi verslana og þjónustustöðva eftir þörfum.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þekking og reynsla af uppsetningu og viðhaldi kassakerfa og tengdra tækja.
  • Kunnátta og skilningur á LS Central for retail kassakerfi er skilyrði.
  • Reynsla af sambærilegu þjónustu- eða tæknistarfi.
  • Geta til að vinna sjálfstætt og bregðast hratt við vandamálum.
  • Jákvæðni, þjónustulund og góð samskiptafærni.

Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir, Forstöðumaður upplýsingatækni – [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2025.

Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur13. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar