
Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu! Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 16 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi.
Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins í fjögur skipti ásamt því að vera Fyrirmyndar fyrirtæki á vegum VR 16 ár í röð og hlotið Jafnlaunavottun 2023-2026.
Viltu dansa með okkur?

Tæknifulltrúi hjá Nova
Við leitum að framúrskarandi skemmtilegum tæknifulltrúa til að taka með okkur dansinn í tækniþjónustu Nova! Starfið er draumur í dós fyrir þau sem hafa óbilandi áhuga á tækni og þróun. Góðir samskiptahæfileikar, bullandi þjónustulund, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru lykilþættir fyrir starfið. Brennandi áhugi og haldbær reynsla af snjalltækjum, tölvubúnaði og nýjustu tækni gæti mögulega komið þér fram fyrir í röðinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur meðal annars í sér:
- Símasvörun tækniþjónustu fyrirtækja.
- Greining og úrlausn tæknilegra mála.
- Vöktun og viðbragð vegna bilana.
- Fylgjast með nýjungum, leggja til og miðla áfram þekkingu og reynslu fyrir símtæki og endabúnað.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tæknimenntun æskileg
Auglýsing birt25. ágúst 2025
Umsóknarfrestur31. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)