Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær

Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsmála

Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær hafa sameinast um uppbyggingarverkefni innan stjórnsýslu og stofnað nýtt svið umhverfis- og skipulagsmála.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga til að stýra nýju sviði og leiða þróun umhverfis-, skipulags- og byggingarmála og yfirstjórn verklegra framkvæmda samstarfssveitarfélaganna.

Sviðsstjóri leiðir teymi starfsfólks sem fer með skipulags- og byggingarmál, verklegar framkvæmdir, eignaumsjón og önnur áhugaverð umhverfisverkefni og stjórnsýslu málaflokksins hjá samstarfssveitarfélögunum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Kostur ef umsækjandi hefur annað hvort réttindi til að starfa sem skipulags- eða byggingarfulltúi eða að menntun veiti umsækjanda tækifæri til að öðlast réttindi sem skipulags- eða byggingarfulltrúi í kjölfar ráðningar
Þekking á góðum stjórnsýsluháttum og haldgóð reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Skýr framtíðarsýn um þróun málefnasviðsins hjá samstarfssveitarfélögunum. Reynsla af stefnumótun á málefnasviðinu er kostur
Reynsla af mannauðsstjórnun og verkefnastjórnun er kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar
Góð tölvukunnátta og þekking á stafrænni þjónustu
Stjórnunarhæfileikar og leiðtogafærni, þ.m.t. hæfni til að leiða hóp og skapa hvetjandi starfsumhverfi fyrir starfsfólk og jákvæða þjónustuupplifun fyrir viðskiptavini
Skýr sýn um árangurs- og lausnamiðaða nálgun í starfi
Frumkvæði, fagmennska, skipulagshæfni og skilvirkni
Góð færni í íslensku
Einlægur áhugi á metnaðarfullu faglegu starfi á málefnasviðinu
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegri starfsemi í umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum, verklegum framkvæmdum og eignaumsjón í samstarfssveitarfélögunum, rekstri sviðsins, áætlanagerð, mannauðsmálum og stjórnsýsluframkvæmd sviðsins.
Leiðandi hlutverk í faglegri þróun þessa nýja sviðs og þátttaka í stefnumótun sveitarstjórnanna í framangreindum málaflokkum.
Tryggir að lögum um mannvirki nr. 160/2010, skipulagslögum nr. 123/2010 og öðrum lögum og reglugerðum sem varða viðfangsefni sviðsins sé framfylgt.
Samstarf og ráðgjöf við fagnefndir sveitarfélaganna og bæjarstjóra/oddvita um verkefni sviðsins.
Samskipti og fyrirsvar gagnvart íbúum, opinberum stofnunum og öðrum hagsmunaaðilum um málefni sviðsins
Umsjón með umhverfisverkefnum sveitarfélaganna, náttúruvernd, fegrun umhverfis og umhirðu, opnum svæðum, umferðar- og samgöngumálum, sorpmálum.
Leiðir stafræna þróun og miðlun sveitarfélaganna á málefnasviðinu.
Umsjón með stjórnsýslu framangreinda málaflokka.
Auglýsing birt10. maí 2021
Umsóknarfrestur17. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 3, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar