

Sviðsstjóri aðgerðarsviðs Rauða krossins á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra aðgerðarsviðs.
Aðgerðarsvið hefur yfirumsjón með landsdekkandi verkefnum og alþjóðlegu mannúðarstarfi félagsins.
Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með starfsemi sviðsins og ber ábyrgð á stefnumótun, þróun og samhæfingu verkefna þess í samræmi við stefnu og hlutverk Rauða krossins.
Mikilvægur þáttur starfsins er að tryggja öflugt samstarf og samhæfingu innan félagsins og styðja við starfsemi deilda Rauða krossins um land allt. Sviðsstjóri veitir stjórnendum og starfsfólki sviðsins faglega forystu, ráðgjöf og stuðning og stuðlar að góðri samvinnu þvert á starfsemina.
Sviðsstjóri starfar náið með framkvæmdastjóra og öðrum sviðsstjórum og tekur virkan þátt í stefnumótun, þróun og stjórnun Rauða krossins á Íslandi.
- Fagleg forysta og yfirumsjón með starfsemi aðgerðarsviðs.
- Ábyrgð á stefnumótun, þróun og innleiðingu verkefna sem heyra undir sviðið.
- Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlunum sviðsins og eftirfylgni með þeim.
- Stuðningur og ráðgjöf við deildir Rauða krossins á Íslandi.
- Umsjón með samningagerð vegna verkefna sem heyra undir sviðið.
- Samskipti og samstarf við opinbera aðila, viðbragðsaðila, samstarfsaðila og aðra hagaðila.
- Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi Rauða krossins eftir því sem við á.
- Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og stefnumótun Rauða krossins á Íslandi.
- Frumkvæði að þróunar- og umbótaverkefnum sem styðja við öflugt og árangursríkt mannúðarstarf.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Víðtæk og farsæl stjórnunar- og leiðtogareynsla.
- Reynsla af stefnumótun, rekstri og áætlanagerð.
- Reynsla af starfi innan Rauða krossins er kostur.
- Reynsla af breytingastjórnun og þróun starfsemi er kostur.
- Þekking eða reynsla af mannúðarstarfi, almannavörnum, félags- eða velferðarmálum eða alþjóðlegu samstarfi er kostur.
- Rík leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að skapa traust, efla samstarf og leiða fólk að sameiginlegum markmiðum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulags- og greiningarhæfni.
- Hæfni til að starfa í flóknu umhverfi þar sem ólíkir aðilar þurfa að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti.
Íslenska
Enska