
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Jötunheimar - aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra frá og með 1. júní 2019 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun og rekstri leikskólans sem og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Er faglegur leiðtogi og ber að kynna sér nýjungar í starfi og miðla þekkingu til starfsmanna.
- Skipuleggur og ber ábyrgð á að undirbúningstímar starfsmanna séu notaðir til skipulags á leikskólastarfinu.
- Starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.
- Sinnir þeim verkefnum er varða stjórnun og uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum.
Kröfur um menntun, kunnáttu, reynslu og/eða hæfni
- Leyfisbréf leikskólakennara.
- Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, frumkvæði, áhugasemi og góður samstarfsvilji.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta.
- Góð tölvukunnátta.
Frekari upplýsingar veitir Júlíana Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri, sími: 480-6372. Netfang: [email protected]
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2019. Störfin henta jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Hægt er að kynna sér leikskólastarfið á heimasíðu Jötunheima: http://jotunheimar.arborg.is/
Auglýsing birt27. mars 2019
Umsóknarfrestur12. apríl 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri / aðstoðarleikskólastjóri
Mánaland

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn Tjörn

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólinn Krílakot: Leikskólakennarar
Dalvíkurbyggð