
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar samanstanda af íþróttahúsum í hverjum kjarna, sundlaugum, Fjarðabyggðarhöllinni og skíðasvæðinu í Oddsskarði. Í Fjarðabyggð eru fimm íþróttamiðstöðvar ásamt Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Íþróttamiðstöðvarnar eru nýttar sem skólamannvirki, til æfinga og fyrir almenning. Í sveitarfélaginu eru einnig glæsilegar útisundlaugar á Norðfirði og Eskifirði, með heitum pottum, sundrennibrautum og frábærri aðstöðu. Á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Á Stöðvarfirði og í Breiðdal eru litlar útilaugar ásamt heitum pottum í fallegu umhverfi. Skíðasvæðið Oddsskarð er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.

Svæðisstjóri skíðasvæðisins í Oddsskarði
Yfirumsjón með daglegri starfsemi svæðisins, bæði utandyra á svæði og innandyra í skála. Umsjón með öryggis- og gæslumálum á svæðinu. Umsjón með viðhaldi tækja, búnaðar og fasteigna á skíðasvæðinu í samráði við forstöðumann og viðhaldsstarfsmenn. Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila vegna starfsemi skíðasvæðisins. Tryggir að aðstaða og þjónusta í skíðaskálanum sé í góðu ástandi og gerir tillögur að úrbótum eftir þörfum í samráði við forstöðumann. Fylgist með tekjum og kostnaði í daglegum rekstri skíðasvæðisins og veitir forstöðumanni upplýsingar um þróun rekstrarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur daglegan rekstur svæðisins í samstarfi við forstöðumann.
- Hefur umsjón með öryggis- og gæslumálum, bæði í skíðaskála og á útisvæði.
- Tryggir að viðhald og eftirlit með tækjum og búnaði sé framkvæmt reglulega, m.a. á lyftum, snjótækjum og öðrum búnaði svæðisins.
- Fylgist með veður- og aðstæðubreytingum og grípur til viðeigandi aðgerða í samráði við forstöðumann.
- Hefur yfirumsjón með birgðahaldinu fyrir rekstur svæðisins, s.s. eldsneyti, öryggisbúnaði og viðhaldsvörum.
- Skipuleggur og hefur umsjón með viðhaldsverkefnum á skíðasvæðinu, bæði innandyra og utandyra.
- Heldur uppi samstarfi við Veðurstofu Íslands, lögreglu og aðra eftirlitsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla.
- Reynsla af rekstri og viðhaldi tækja og búnaðar.
- Þekking á viðhaldi mannvirkja og búnaðar skíðasvæða.
- Reynsla af störfum á skíðasvæði er kostur.
- Þekking á veðurskilyrðum, veðurmati og snjóalögum er æskileg
- Grunnþekking á tölvukerfum er nauðsynleg.
Auglýsing birt30. júlí 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skíðamiðst. Oddsskarð 219856, 735 Eskifjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveinsprófTeymisvinnaVandvirkniVinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Meiraprófsbílstjóri - Reyðarfjörður
Hringrás Endurvinnsla

Fullt starf í viðhaldsdeild í laxavinnslu Arnarlax
Arnarlax ehf

Spennandi tækifæri fyrir bifvéla- eða vélvirkja
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Bílstjórar óskast
Hópbílar

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á bifreiðum.
Teitur

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Veltir

Excavator Operators
Ístak hf

Gröfumenn á belta- og hjólagröfu
Ístak hf

Rafvirki
Blikkás ehf

Blikksmiður, vélvirki eða stálsmiður
Blikkás ehf

Véla-og tækjamaður óskast til starfa
Byggingafélagið Sandfell ehf

Bílstjóri með meirapróf (C & CE) - Þorlákshöfn
Torcargo